Dagskrá

September 2010
S M T W T F S
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930EC

Næstu atburðir

Kaldalóns Saga keppir á NM Höyfjell 2010

Kaldalóns Saga Á morgun föstudag hefst keppnisflokkurinn á NM Höyfjell 2010 og keppa þar allir bestu fuglahundar Noregs. Við getum verið stoltir af því að eiga einn fulltrúa þar Enska setann Kaldalóns Sögu. Per Arne Watle mun keppa með hana á morgun föstudag. Það komast færri að en vilja í þessa keppni og langir biðlistar ef einhverjir hundar forfallast. Bein útsending var í dag frá liðakeppninni og verður væntanlega á morgun líka á gordonsetter.no.  Þetta er þriggja daga keppni sem lýkur með úrslitum á sunnudag og verður spennandi að sjá hvernig Kaldalóns Sögu mun ganga.

Áfangafellsprófið

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Nú styttist í eitt af stóru prófunum. Þriggja daga prófið í Áfangafelli verður haldið um aðra helgi, föstudaginn 10 og laugardaginn 11 september verður prófað í UF og  OF og sunnudaginn 12 sept verður keppnisflokkurinn haldinn. Þetta hefur verið fjölsótt próf og alltaf nóg af fugli. Tveir dómarar dæma og eru það Egill Bergmann og  norski dómarinn Odd Harald Sörben, prófstjóri er Pétur Alan þetta próf er no.501011. Skráningarfrestur rennur út á föstudaginn 3 sept  á skrifstofu HRFI og sunnudaginn 5 sept ef skráð er í gegnum netið.

Veiðpróf fellur niður

Vífilfell  

Veiðiprófið sem halda átti þann 4. september fellur niður vegna slæmrar þáttöku og lóðarís. Ekki skráðu sig nægilega margir svo  uppfyllt væri reglum um veiðipróf. Þetta var tilraun FHD  til að vera með próf snemma meðan rjúpan væri enn brún á litin og hundarnir yrðu eingöngu að treysta á lyktarskynið.

Skráningu lýkur Sunnudag

Francini hress

Skráningarfrestur í fyrsta veiðipróf  haustsins rennur út sunnudaginn 29. ágúst. Og er hægt að skrá sig í gegnum netið til miðnættis. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu HRFÍ voru þó nokkrar skráning komnar í síðustu viku og gæti stefnt í skemmtilegt próf. Nú er um að gera að skrá sig og mæta sem flest.

Allir ensku setarnir hlutu excellent á syningunni í dag

Henning og Sally  
Hrímþoku Sally Vanity, Snjófjalla Húsavíkur Susie Q (Birta) og Vallholts Vaka tóku þátt í alþjóðlegu hundasýningunni
sem fram fer núna um helgina. Lesa meira / Read more…

Nýr formaður FHD

Sólheimakot

Á fundi FHD sem haldin var í kvöld var Haukur Reynisson kosinn nýr formaður FHD, tekur hann við af Ólafi  E Jóhannssyni sem búinn er að skila góðu starfi í þágu fuglahundasportsins. Einnig kom Henning Aðalmundsson nýr inn í stjórn FHD.Enskursetter.is óskar Hauki velfarnaðar í nýju og krefjandi hlutverki.